Í seinasta bloggi lofaði ég að skrifa daginn eftir og ég hef góða útskýringu fyrir því að hverju ég gerði það ekki.
Sko ég var í tölvuni og ákvað að blogga smá síðan þegar ég reyndi að vista vildi talvan ekki virka svo að ég hélt að ekkert hefði komið og nennti ekki að skrifa allt upp á nýtt.

Þetta var góður skóladagur. Ég var í Líffræði, Stærðfræði, Lífsleikni og Íslensku.

Í stærðfræði vorum við að rifja upp hvað við vorum búin að vera gera.

Í Lífsleikni var Pálínuboð og þá komu allir með kökur eða eitthvað til að borða. Ég og Ingunn gerðum smákökur og þær kláruðust allar.

Í Íslensku vorum við eitthvað að ræða um námsárangur og hegðun.

Í Líffræði vorum við að klára verkefni.

Fyndið:
Í Líffræði var ég að rétta upp hönd til að fá hjálp og þá kom kennarinn , Já Alexandra, og ég leiðrétti hann og bætti við Líf (ég vill nefnilega vera kölluð Alexandra Líf). Þá sagði hann: ,Af hverju?,
Ég: Af því
Kennarinn: Þá vill ég að þú kallir mig Stefán Líf
Ég: Ok Stefán Líf
Kennarinn: Reyndar heiti ég Stefán Steingrímur svo að þú átt að kalla mig það.

Síðan í lok tímans sagði Ingunn: Takk fyrir tímann Stefán Steingrímur

Það var mjög sérstakt

-AlExAnDrA lÍf